Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Ásgerđur Kristrún Sigurđadóttir
  • Stađur: Vesturbćrinn

Innskráningar kubbur

Atburđarteljari

Nýjast á HumorPix

Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay.. Funny Images, Prince Kid Funny Images, Nicolas Cage in every single movie Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit

26. febrúar 2008 klukkan 19:59
Er maður andlaus..... já með öllu!!!
Ásgerđur Kristrún Sigurđadóttir
Engin athugasemd

Hummm......

06. febrúar 2008 klukkan 02:56
já langt síðan ég hef litið hér inn og ætla með semí nýju ári að gera betur en í ''gær'' eða þannig í skriftum mínum.

Annars hvað er betra en nokkra pönsur að næturlagi, hvað haldið þið.... mín skellti nokkrum á pönnuna og sá eiginlega líka um átið á þeim þar sem meðleigendur mínir eru eitthvað minna gefnir fyrir slíkt svona seint. En auðvitað lét ég það ekki á mig fá og borðaði með bestu list með sultu og sykri!!

Nú er ég komin með svakalegt hobbý.... eldhúsið, eldun og bakstur.... ég er orðin eins og versta húsmóðir að skoða kokkabækur eins og ég veit ekki hvað!!!

Passið ykkur bara ég gæti farið að taka upp á því að ganga á línuna og bjóða fólki í mat og kaffi.... eins og amma gamla og hafa minnst 8 rétta!!!!
Ásgerđur Kristrún Sigurđadóttir
1 athugasemd

Eldar geisa

21. október 2007 klukkan 00:39
Jæja það er bara svona, í morgun þegar við litum út var okkur ekki alveg sama þar sem það leit út fyrir að vera asskoti þungbúinn himininn. Töltum við síðan út og augu og alles fyltust af örfínu ryki, stoppuðum við einhvern vegfaranda hvað væri eiginlega í gangi. Sagði hún að þetta væri aska frá eldum sem geisa lengst í burtu í fjöllunum í kring og eru búinir að brenna síðan 4. júlí. Aldeilis, aldeilis og við erum bara óheppin með vindáttina í dag!
 
Ásgerđur Kristrún Sigurđadóttir
3 athugasemdir

jó jó jó

15. október 2007 klukkan 01:17
Þetta var rúmlega prýðilegt prome - tóm gleði þar sem prome kóngur og drottning voru krýnd!!! Síðan en ekki síst tóku kóngafólkið upp á smá strippi... huggulegt ;) ekki slæmt - sjá myndir!!!  Hurru svo fórum við í þynkunni daginn eftir og eyddum restinni af krónunum mínum og ég verslaði mér digital cameru og tölvu... það má deila um hversu gáfulegt er að fara í svoleiðis verslunarferð, daginn eftir gott tjútt, en það gekk engað síður eftir og ég renndi bara vísa í gegn eins og enginn væri morgundagurinn....  sit ég nú bara með nýja tölvuskrjóðinn í fanginu eins og hann væri minn fyrsti hvítþvoðungur!!!

Ásgerđur Kristrún Sigurđadóttir
3 athugasemdir

Er ađ verđa ótrúlega amerísk sko....

12. október 2007 klukkan 00:42
Gvuuuuddd ég er að fara á prome (held að þetta sé rétt skrifað, þið þanna sem meikið ekki að sjá eh stafsetninga vitleysur megið alveg leiðrétta mig, mér er alveg sama), en já við eru að tala um prome með öllu tilheyrandi, eins og í bíómyndunum!!!

Marr þarf víst að mæta eh massa fínn - get ekki beðið þetta verður eh fyndið!!
Þannig að mar þarf víst að dusta rykið af lakkskónum og þetta verður víst á morgun!

Pressa pressa lagning og læti heheheh
Ásgerđur Kristrún Sigurđadóttir
3 athugasemdir

Leiđin til ''fyrirheitna'' landsins

11. október 2007 klukkan 04:49

Soddan var það, við lögðum af stað til Minneapolis þann 9 sept. þar sem við ætluðum síðan að taka næstu vél til LA. Þegar við lentum í Minneapolis og vorum að fara í gegnum innflytjendaeftirlitið, þá var ásalíusinn bara stoppaður og beðin að koma inn í eitthvað herbergi.

 

Á þeirri stundu var ég nú bara mjög svo hress en eftir rúmlega hálftíma yfirheyrslu, þá var ég nú orðin minna hress skal ég segja ykkur. Sko mig grunar að ástæðan sem þeir kölluðu svona bara random tékk, hafi ekki verið að ég hafi litið út eins og hver annar hryðjuverkamaður eða kona, heldur eh vinnu tengt, hafi verið eh stessaðir um að planið mitt væri að fara að mala gull í um 3 mánuði í þeirra ríki.

Sko að vera að spjalla við mann hrönulega í um 4o mín af 4 manneskjum og ekki með mjög svo fjölbreyttar spurningar heldur bara eiginlega hvern fjandann ég ætlaði að að gera þanna og hvenær færi ég heim, getur verið dulítið taugatekkjandi á köflum. Ég var þvílíkt að reyna bara að vera kammó og kaldhæðin að það gefur ekki góða raun þannig að þið hin sem eruð að koma hingað yfir þá er það bara algörlega satt og sannað að þeim finnst ég bara ekkert fyndin!!! Dísssesss hallló

 

Þannig að ekki taka neina ásu við yfirheyrslu. Svo tóku þeir allt dótið mitt og fóru með það í eitthvað annað herbergi og voru eitthvað að kássast í því druslurnar L . Svo vildu þeir fá að sjá póstinn minn og fóru á hotmailið mitt, og síðuna hjá Háskóla Íslands en þá var ég orðin dulítið þreytt á þessu og eiginlega bara búin á því að reyna að svara sömu spurningunum og var alveg að búast við því að ég væri bara að fara að taka næstu flugvél til Íslands því ég væri svo eh asnaleg og ekki fyndin, svo líka var mig farið að gruna að ég hefði óvart tekið eh með frá Íslandi sem væri í farangrinum sem ég mætti ekki taka með eða einhvern fjandann. En á þeirri stundu áttuðu þeir sig að þeir skildu ekki íslensku og skildu ekkert sem stóð þarna og nettu þessu ekki lengur og sögðu bara eiginlega skemmtu þér vel og bless bless. Þá átti ég bara að taka allt draslið mitt og hunskast og þegar ég gekk út fann ég að minns var farin að titra sona örugglega úr eftirstressi og Jónki greyið fékk ekkert að vita og beið bara stjarfur vissi ekkert hvort ég væri bara að fara heim eða hver fjandinn væri í gangi.

 

Sem sem áður var stessið bara rétt að byrja því á þessari stundu þurftum við að spítta í því við vorum að fara að missa af næstu vél!! Hressandi, en við höfðum verið svo ótrúlega heppin að hitta strák Jordan að nafni sem hafði setið við hliðina á okkur í flugvélinni og við höfðum verið að spjalla við, en hann beið með Jónka og farangrinum frammi. Síðan hjálpaði hann okkur og mamma hans líka sem hafði komið að sækja hann við að rata og koma okkur að réttu terminali sem var ekkert sérstaklega auðvelt eftir allt en hann var ótrúlega, ótrúlega indæll!! J

 

Jæja þannig að við komumst um borð og lentum í LA, gistum á einhverju Inn og tókum síðan bílaleigubíl til Santa Barbara og nú erum við hér!!

Mynd af genginu en það vantar inn á hana mömmu Jordas

Jordan, Ása og Jón Karl
Jordan, Ása og Jón Karl

 

 

Ásgerđur Kristrún Sigurđadóttir
2 athugasemdir

Nú byrjar balliđ

09. október 2007 klukkan 08:51
Viti menn, það hefur sem sagt bókstaflega gerst bara núna, bara akkurat núna að hún Ása nokkur er komin með blogg!!

Tja hvað skal segja er nú annað mál, en hálfnað verk nú hafið er... og nú eftir þessi átök er ég að hugsa um að fara að sofa í hausinn á mér og svo ætla ég að dúndra niður hérna  eh að viti á morgun og hafa smá ferða sögu og hugguleg heit!!!


Ásgerđur Kristrún Sigurđadóttir
1 athugasemd